Skrifað var undir samstarfssamning milli 1.deildarinnar í hestaíþróttum og hestamannafélagsins Sörla í Hafnafirði 11.júní 2025.
Deildin mun næstu árin verða til húsa í nýrri og glæsilegri Sörlahöll.
Það er spennandi vetur framundan og verður gaman að fylgjast með keppendum deildarinnar spreyta sig í nýrri og glæsilegri reiðhöll Sörla.

Dagsetningar fyrir keppnisgreinar hafa þegar verið ákveðnar fyrir veturinn 2026 og eru þær eftirfarandi.
Fjórgangur V1, 13. feb 2026
Gæðingalist, 27. feb 2026
Slaktaumatölt T2, 12. mars 2026
Fimmgangur F1, 26. mars 2026
Tölt T1 og 100m skeið, 9. apríl 2026
Gæðingaskeið og lokahóf 18.apríl 2026