Fyrsta deildin í hestaíþróttum hefst núna 23. febrúar á keppni í fjórgangi. Garðar Hólm Birgisson er formaður fyrstu deildarinnar í hestaíþróttum en deildinni er ætlað að koma á milli Áhugamannadeildarinnar og Meistaradeildarinnar sem báðar hafa notið mikilla vinsælda.
„Það vantaði vettvang fyrir ákveðinn hóp knapa á höfuðborgarsvæðinu og suðvesturhorninu sem passaði ekki inn í hinar deildirnar. Það sýndi sig síðan í því að það voru miklu fleiri sem vildu vera með en komust að,“ segir Garðar Hólm aðspurður út í tilurð deildarinnar. „Okkur langaði að búa til deild sem myndi tengja Áhugamanna- og Meistaradeildina. Að þetta yrði eins og í öðrum íþróttum þar sem lið færast á milli deilda. Þá yrði líka komið ákveðið kerfi sem síar knapana og umræðan um hvort fólk sé að skrá sig í vitlausar deildir myndi minnka.“
Það eru átta lið í 1. deildinni og er henni stillt upp á mjög svipuðum nótum og Meistaradeildinni í hestaíþróttum. Keppt verður í meistaraflokksgreinum þ.e.a.s tölt T1, fjórgangi V1, fimmgangi F1 o.s.frv. Keppt verður í sömu greinum og í Meistaradeildinni þó ekki í 150 m. skeiði og verður keppt í stigi tvö í gæðingalistinni en ekki stigi 1 eins og í Meistaradeildinni.
Mikil aðsókn í deildinaNokkrar áhyggjur voru um að ekki væri pláss fyrir „enn eina“ deildina á markaðnum en það hefur ekki verið raunin. Fjórtán lið sóttu um pláss í 1. deildinni og þrátt fyrir að þrjú lið hafi farið úr Áhugamannadeildinni yfir í 1. deildina þá voru fjögur ný lið sem sóttu um í Áhugamannadeildinni.