LEIKREGLUR FYRIR 1. DEILD Í HESTAÍÞRÓTTUM

1. FORM
1.1 Fyrsta deildin er einstaklings- og liðakeppni.
1.2 Keppendur eru 40.
1.3 Liðin eru allt að 8 talsins með 5 knöpum hvert, þrír knapar úr hverju liði keppa í hverri grein.
1.4 Keppnisgreinar eru V1, F1, T1, PP1, T2, P2 og Gæðingalist 2.

2. STIG
Árangur keppnisliða og einstaklinga er mældur í stigum.
2.1 Í einstaklingskeppninni fá 10 efstu knapar stig. 1. sæti gefur 12 stig, 2. sæti 10 stig, 3. sæti 8 stig, 4. sæti 7 stig, 5. sæti 6 stig, 6. sæti 5 stig, 7. sæti 4 stig, 8. sæti 3 stig, 9. sæti 2 stig og 10. sæti 1 stig.
2.2 Knapi sem safnar flestum stigum á keppnistímabili er sigurvegari deildarinnar o.s.frv.
2.3 Í liðakeppninni eru stigin frá 1 til 24 og skilar sigurvegari keppnisgreinar 24 stigi til síns liðs. Sá sem er númer tvö í keppnisgrein skilar 23 stigum til síns liðs o.s.frv.
2.4 Lið sem safnar flestum stigum yfir keppnistímabilið vinnur 1. deildina.
2.5 Séu tveir eða fleiri knapar jafnir í efsta sæti sýna dómarar sæta röðun knapa. Ef knapar eru jafnir í öðru sæti en því fyrsta, deila þeir með sér sætinu (nema í P2 þar sem farið verður hinn sprettinn og raðar hann þá í sæti). Hlutkesti ræður úthlutun verðlauna. Verði knapar jafnir í keppnisgrein skiptast stigin jafnt á milli þeirra og á það jafnt við um liðakeppnina og einstaklingskeppnina. Engu breytir ef keppendum er úthlutaður verðlaunagripur skv. uppkasti. Fari fram dómaraúrskurður falla stigin hins vegar eftir þeirri niðurstöðu.
2.6 Knapi sem gerir ógilda sýningu eða hlýtur 0 í einkunn hlýtur hann 0 stig. Annað gildir um keppendur í skeiði en ef sá knapi fær 0,0 sek. fyrir tíma eftir báða spretti hlýtur hann samt stig og deilir með öðrum knöpum með engan tíma.

3. ÚRSKURÐUR UM FYRSTA SÆTI Í KEPPNISGREIN OG SAMANLÖGÐUM ÁRANGRI
3.1 Í keppnisgreinum þar sem niðurstaða byggist á spjaldadómum skal skorið úr um fyrsta sæti með sæta röðun dómara.
3.2 Í skeiðkappreiðum eru tveir sprettir og vinnur sá sem hefur besta tímann úr báðum sprettum, ef tveir eru jafnir vinnur sá sem hafði betri tíma úr fyrri spretti.
3.4 Ef tveir knapar eru jafnir í samanlagðri stigasöfnun eftir lokamót 1. deildar vinnur sá sem hefur unnið fleiri greinar. Ef knaparnir hafa jafn mörg gull ráða þá silfrin og ef þau eru jafn mörg þá bronsin o.s.frv.
3.5 Ef tvö lið eru efst og jöfn í samanlögðum stigum eftir lokamót 1. deildar vinnur það lið sem fleiri greinar vann í mótaröðinni, ef þau standa þá enn jöfn vinnur það lið sem oftar var í öðru sæti keppnisgreinar o.s.frv.

4. VERÐLAUN
4.1 Medalíur eru fyrir 6 fyrstu sætin í hverri keppnisgrein, fyrstu þrjú sætin fá verðlaunagrip. Fimm efstu knapar í samanlögðum árangri á keppnistímabili fá verðlaunagripi. Efsti knapi fær farandgrip að auki.
4.2 Þrjú efstu liðin eftir keppnistímabil fá verðlaunagrip og að auki efsta sætið farandgrip. Allir einstaklingar keppnisliðs sem sigrar fá verðlaunagrip.

5. KEPPNISGREINAR OG REGLUR
5.1 Keppt er eftir FEIF reglum í keppnisgreinum, tölt T1, slaktaumatölt T2, gæðingaskeið PP1, fjórgang V1, fimmgang F1, flugskeið P2 og gæðingalist 2. Horft er fram hjá þeim annmarka að oftast er keppt á minni velli en gert er ráð fyrir í FEIF reglunum, ef P2 er ekki haldin utandyra þá er keppt í gegnum reiðhöll og með styttra skeiðfæri.
5.2 Séu breytingar frá FEIF reglum skal yfirdómari koma þeim upplýsingum á framfæri með skýrum hætti á knapafundi eða á annan sannanlegan hátt fyrir hvert keppniskvöld
5.3 Sami hestur má keppa í öllum greinum 1. deildar í hestaíþróttum.
5.4 Riðin eru A úrslit, sex knappar í úrslitum.
5.5 Hámarksfjöldi hesta í úrslitum skal vera sex. Ef fleiri en einn hestur er í 6 sæti skal meðaltal fimm dómara gilda, ef hestar eru enn jafnir þá skal sætaröðun fimm dómara gilda.

6. REIÐMENNSKA
Dómarar geta gefið knöpum gul eða rauð spjöld eftir atvikum ef þeim finnst að knapar séu of grófir í sinni reiðmennsku. Stuðst er við reglur FEIF. Jafnvel þótt fleiri en einn dómari gefi gult spjald fyrir ákveðið tilvik telst það eitt gult spjald í 1. deild í hestaíþróttum. Fyrir hvert gult spjald umfram eitt á keppnistímabili verða 2 stig dregin af knapa í heildar stigasöfnun einstaklings keppninnar. Ef knapi fær rautt spjald er honum vikið úr viðkomandi keppnisgrein og fær að auki í frádrátt 5 stig í heildarstigasöfnun einstaklingskeppninnar. Þetta á eingöngu við um þau atvik þegar knapi fær rautt spjald vegna grófrar reiðmennsku, en ekki í þeim tilfellum þegar rautt spjald er gefið af tæknilegum ástæðum t.d. ef fer úr braut eða riðið er of marga hringi o.s.frv.

7. KEPPENDUR / KNAPAR / LIÐ
7.1 Knapar sem taka þátt í 1. deild í hestaíþróttum skulu vera fullgildir meðlimir í hestamannafélagi sem er í Landssambandi hestamanna. Þar sem Landssamband hestamanna er fullgildur aðili að Íþróttasambandi Íslands (ÍSÍ), gilda lög og reglur ÍSÍ er varða íþróttamenn um knapa 1. deildar í hestaíþróttum.
7.2 Lágmarksaldur keppenda í 1. deild er 21 ára, 22 ára á árinu.
7.3 Að deild lokinni færist lið sem neðst er niður í Áhugamannadeild. Nýtt lið sem byrjar í deildinni á næstu leiktíð verður efsta lið Áhugamannadeildarinnar árinu áður.
7.4 Ef liðseigendi sem á sæti í deildinni vill ekki nýta sætið, þá geta tveir eða fleiri knapar myndað nýtt lið sem heldur sætinu.
7.5 Fullskipuð lið eru tilkynnt á aðalfundi deildarinnar.
7.8 Knapar og aðstandendur viðkomandi liðs geta leitað skýringa til yfirdómara allt að sólarhring eftir að keppni lýkur. Sé knapi vís um að eiga í óviðeigandi samskiptum við dómara um dóma á keppnistímabili, getur hann átt á hættu að vera refsað með keppnisbanni í næstu grein.
7.9 Knapar eru ávallt til fyrirmyndar innan sem utan vallar, taka þátt í deildinni á eigin ábyrgð og vinna eftir samþykktum og leikreglum deildarinnar.
7.10 Knapar taka þátt í markaðsstarfi deildarinnar m.a. með viðtölum, myndatöku og á samfélagsmiðlum.

8. FORFÖLL KNAPA
8.1 Varanlegt forfall. Þurfi knapi að hætta keppni í 1. deild í hestaíþróttum eftir að lið hafa verið skipuð tekur varaknapi sæti þess sem hættir í liðinu. Þá getur liðið tilnefnt til stjórnar nýjan varaknapa í staðinn. Stjórn deildarinnar þarf að samþykkja tilnefninguna eða leiðbeina um annan. Hlutverk stjórnar í þessu tilliti er að tryggja að hæfur knapi verði valinn. Stjórnin hefur sömu viðmið og getið er um í kafla 7.
8.2 Knapar sem koma inn og keppa í 1. deild sökum forfalla annars knapa, keppa á sama grundvelli og aðrir knapar, safna stigum fyrir lið sitt og sækja stig og verðlaun í einstaklingskeppninni eftir gildandi reglum.
8.3 Stjórn hefur heimild til að leyfa liðum að velja sér knapa utan deildarinnar séu uppi óviðráðanlegar aðstæður eftir að keppnistímabil sé hafið.

9. DÓMSTÖRF / KEPPNISVELLIR
9.1 Dómarar. Haft skal að leiðarljósi að velja hæfustu dómara sem völ er á fyrir hvert verkefni.
9.2 Yfirdómar. Yfirdómari annast málefni dómara. Yfirdómari hefur vald til að víkja dómara frá keppni hvenær sem er ef honum finnst viðkoman di dómari hafa vikið frá faglegum gildum. Yfirdómari hefur eftirlit með dómstörfum og gefur skýrslu um þau til stjórnar og dómara.
9.3 Mótsstjórn. þrír aðilar skipa mótsstjórn, yfirdómari, fulltrúi knapa og aðili valinn af stjórn 1. deildar í hestaíþróttum. Mótsstjórn er æðsta vald á mótsstað og hefur þannig vald til að úrskurða ef mál koma upp sem valda ágreiningi.
9.4 Kærufrestur. Knapar og lið hafa eina klukkustund eftir lok keppni til að kæra framkvæmd eða útreikninga keppnisgreinar. Að þeim tíma liðnum standa niðurstöður. Kærur sem berast að loknu móti fara á sameiginlegt borð stjórnar, mótsstjórnar og eins fulltrúa knaparáðs, sem verða að kynna niðurstöðu innan tveggja sólarhringa frá því að kæra berst. Einkunnir dómara eru ekki kæranlegar.
9.5 Vallarstjórn. þrír aðilar skipa vallarstjórn, einn úr stjórn, fulltrúi knapa og yfirdómari. Vallarstjórn tryggir að vellir, reiðhallir, upphitunarsvæði og merkingar séu ásættanlegar degi fyrir æfingar og á mótsdag. Vallarstjórn fer yfir keppnisvæði með leigusölum a.m.k. einn mánuði fyrir mót hvort úrbóta sé þörf.